Septemberfundir Norðurlandaráðs í Nuuk á Grænlandi 12.-14. september 2018

(1809159)
Íslandsdeild Norðurlandaráðs

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
06.09.2018 10. fundur Íslandsdeildar Norður­landa­ráðs Septemberfundir Norðurlandaráðs í Nuuk á Grænlandi 12.-14. september 2018
Þingmenn bentu á að tímasetning fundanna miðaðist við þarfir þjóðþinga annarra landa. Hún væri óheppileg með tilliti til flugferða frá Íslandi til Grænlands og vegna setningar Alþingis 13. september. Ritara var falið að koma á framfæri athugasemdum við skrifstofu Norðurlandaráðs og óskum um að framvegis verði tekið aukið tillit til dagskrár Alþingis og til ferðatíma íslenskra þingmanna.